Hoppa í vörulýsingu
1 af 4

Record Power Pathfinder rennibekkjapakki | Vetrartilboð

Record Power Pathfinder rennibekkjapakki | Vetrartilboð

Verð 135,000 ISK
Verð Útsöluverð 135,000 ISK
Tilboð Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Vetrartilboð – Pathfinder rennibekkjapakki

Í þessum pakka færðu Record Power Pathfinder rennibekk, SC2 Mini Chuck rennismíðapatrónu og þriggja hluta karbíðrenniverkfærasett.

Samanlagt viðmiðunarverð varanna í pakkanum, séu þær keyptar hver fyrir sig, er 163.600 kr. Sérstakt vetrarpakkaverð er 135.000 kr. Miðað við samanlagt viðmiðunarverð sparar þú 28.600 kr.

SC2-patrónan og karbíðverkfærin gera þér kleift að byrja strax á fjölbreyttum rennismíðaverkefnum með vönduðum búnaði frá Record Power.

Pakkinn inniheldur

  • Record Power Pathfinder rennibekk, 230 V
  • Record Power SC2 Mini Chuck patrónu, M33 × 3,5
  • Þriggja hluta karbíðrenniverkfærasett með geymslukassa

Tilboðið gildir í takmarkaðan tíma og með fyrirvara um framboð. Pathfinder-pakkinn er pöntunarvara og áætlaður afhendingartími er staðfestur við pöntun.

Vörulýsing

Record Power Pathfinder er öflugur millistærðar rennibekkur sem sameinar kraft, nákvæmni og fyrirferðarlitla hönnun. Hann hentar rennismiðum sem vilja meira afl og stöðugleika en hefðbundnir byrjendabekkir bjóða, án þess að fara í stærstu og dýrustu vélarnar.

Pathfinder er búinn nútímalegum kolalausum mótor (brushless) sem tryggir mjúkan gang, minni hávaða og langan endingartíma með litlu viðhaldi. Rennibekkurinn hentar meðal annars fyrir penna, skálar, handföng, skrautmuni og önnur nákvæm rennismíðaverkefni.

Helstu eiginleikar

  • Kolalaus mótor fyrir hljóðlátari gang og minna viðhald
  • Rafræn hraðastýring
  • Snúningur fram og aftur
  • Steypujárnsbekkur fyrir aukinn stöðugleika
  • M33 × 3,5 gengja sem passar við fjölbreytt úrval patróna
  • MT2 Morse-keilur í drifhaus og sporstykki
  • 24 stöðu deilikerfi

Tæknilýsing

  • Mótor: 1 HP
  • Útgangsafl: 0,75 HP
  • Snúningsþvermál yfir bekk: 305 mm
  • Snúningsþvermál yfir verkfærastoð: 235 mm
  • Lengd milli miðja: 406 mm
  • Lengd milli miðja með framlengingu: 762 mm
  • Hraðasvið: 250–3.200 sn./mín.
  • Gengja: M33 × 3,5
  • Morse-keilur: MT2 í drifhaus og sporstykki
  • Slaglengd sporstykkis: 90 mm
  • Deilikerfi: 24 stöður
  • Þyngd rennibekkjar: 45,5 kg

Pathfinder rennibekkurinn er með M33 × 3,5 gengju og MT2 Morse-keilur, sem gerir hann samhæfan við fjölbreytt úrval Record Power patróna og fylgihluta.

Algengir fylgihlutir fyrir Pathfinder

  • Record Power SC4 patróna
  • Snúningsoddur með MT2-festingu fyrir sporstykki
  • Drifoddur með MT2-festingu fyrir drifhaus
  • Planskífa fyrir skálar og stærri vinnustykki
  • Framlenging á bekk fyrir lengri verkefni

👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe

Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:

Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðslan gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en varan er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Ertu nýr í rennismíði?

Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta sömu hlutunum fyrir sér: Hvaða stærð þarf ég? Hvaða verkfæri þarf fyrst? Og er flókið að byrja? Við höfum sett saman einfaldan byrjendavegvísi sem útskýrir þetta skref fyrir skref áður en þú velur rennibekk. 

👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði
Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér