Record Power Pathfinder + Victory Chuck pakki | Summer Madness | SG Handverk
Record Power Pathfinder + Victory Chuck pakki | Summer Madness | SG Handverk
Summer Madness tilboð
Í takmarkaðan tíma fylgir Record Power Victory Chuck M33 rennismíðaskinnhaus með Pathfinder rennibekk á sérstöku pakkaverði.
Pakkinn hentar vel fyrir byrjendur og lengra komna sem vilja hefja eða efla rennismíðar með vönduðum búnaði frá Record Power.
Tilboðið gildir til 31. ágúst 2026 eða á meðan herferð stendur yfir.
Pantaðu núna – afhending í júlí - september 2026.
Lýsing á vöru:
Record Power Pathfinder er nýr rennibekkur sem sameinar kraft og nákvæmni í nettum og verkstæðisvænum pakka. Hann er hannaður fyrir rennismiða sem vilja meira afl og stöðugleika en hefðbundnir byrjendabekkir bjóða, en án þess að fara í stærstu og dýrustu vélarnar.
Pathfinder er búinn nútímalegum brushless mótor sem tryggir mjúkan gang, minni hávaða og lengri endingartíma með litlu viðhaldi. Hann hentar sérstaklega vel fyrir verkefni eins og penna, skálar, handföng, skrautmuni og önnur nákvæm renniverkefni.
Helstu eiginleikar:
• Brushless mótor – hljóðlátari og viðhaldsminni
• Rafræn hraðastýring
• Snúningur fram og aftur
• Steypujárnsbekkur fyrir stöðugleika
• M33 spindill – samhæft við flestar patrónur
• MT2 keilur í headstock og tailstock
• 24 stöðu indexing kerfi
Tæknilýsing
• Mótor: 1 HP (0,75 HP útgangsafl)
• Snúningsþvermál yfir bekk: 305 mm
• Snúningsþvermál yfir verkfærastoð: 235 mm
• Lengd milli miðja: 406 mm
• Lengd milli miðja með framlengingu: 762 mm
• Hraðasvið: 250 – 3200 sn./mín
• Spindill: M33 × 3,5
• Morse-keilur: MT2 í haus og sporstykki
• Slaglengd sporstykkis: 90 mm
• Indexing kerfi: 24 stöður
• Þyngd: 45,5 kg
Pathfinder rennibekkurinn er með M33 × 3,5 spindil og MT2 Morse-keilur, sem gerir hann samhæfan við fjölbreytt úrval Record Power patrona og fylgihluta.
Algengir fylgihlutir fyrir Pathfinder rennibekk
• Record Power SC4 patrona
• Live centre (MT2) fyrir sporstykki
• Drive centre (MT2) fyrir haus
• Faceplate fyrir skálar
• Framlenging á bekk (bed extension) fyrir lengri verkefni
🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.
Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta sömu hlutunum fyrir sér: Hvaða stærð þarf ég? Hvaða verkfæri þarf fyrst? Og er flókið að byrja? Við höfum sett saman einfaldan byrjendavegvísi sem útskýrir þetta skref fyrir skref áður en þú velur rennibekk.
👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði
Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.