Hoppa í vörulýsingu
1 af 8

Record Power SC3 patrónupakki M33 × 3,5 | Vetrartilboð

Record Power SC3 patrónupakki M33 × 3,5 | Vetrartilboð

Verð 18,200 ISK
Verð Útsöluverð 18,200 ISK
Tilboð Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Vetrartilboð – SC3 patrónupakki M33 × 3,5

Record Power SC3 patrónupakkinn er nett og fjölhæf lausn fyrir litla og meðalstóra rennibekki. Pakkinn inniheldur patrónu með 50 mm staðalkjálkum, djúpri viðarskrúfu og 3" festiplötu.

Fyrra viðmiðunarverð var 22.600 kr. Sérstakt vetrarverð er 18.200 kr. Miðað við fyrra viðmiðunarverð sparar þú 4.400 kr.

Vörulýsing

SC3 patrónan er léttari og nettari en SC4 og hentar sérstaklega vel fyrir litla og meðalstóra rennibekki. Þrátt fyrir nett form býður hún upp á góðan haldkraft og nákvæma stjórnun við fjölbreytt rennismíðaverkefni.

Þétt hönnun patrónunnar dregur úr álagi á snældu og legur rennibekksins. Hún veitir jafnframt góðan aðgang að minni vinnustykkjum og hentar meðal annars fyrir skálar, ílát og smærri skrautmuni.

Patrónan er með M33 × 3,5 snitti og skrúfast því beint á rennibekki sem nota þá festingu. Nákvæmlega unnið gírverk auðveldar að herða og losa vinnustykkið með einum lykli.

SC3 notar sama kjálka- og fylgihlutakerfi og SC4, sem gefur kost á að bæta við fjölbreyttum kjálkum og aukahlutum eftir þörfum.

Helstu eiginleikar

  • Nett og létt rennismíðapatróna
  • M33 × 3,5 bein festing
  • 50 mm staðalkjálkar
  • Nákvæmlega unnið gírverk
  • Patrónan er hert og losuð með einum lykli
  • Góður haldkraftur fyrir fjölbreytt rennismíðaverkefni
  • Hentar sérstaklega vel fyrir litla og meðalstóra rennibekki
  • Samhæf við kjálka- og fylgihlutakerfi SC4

Pakkinn inniheldur

  • Record Power SC3 rennismíðapatrónu
  • 50 mm staðalkjálka
  • Djúpa viðarskrúfu
  • 3" festiplötu
  • Patrónulykil

👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe

Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:

Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Ertu nýr í rennismíði?

Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta sömu hlutunum fyrir sér: Hvaða stærð þarf ég? Hvaða verkfæri þarf fyrst? Og er flókið að byrja? Við höfum sett saman einfaldan byrjendavegvísi sem útskýrir þetta skref fyrir skref áður en þú velur rennibekk. 

👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði
Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér