Record Power Victory Chuck Special Edition patrónupakki M33 × 3,5 | Vetrartilboð
Record Power Victory Chuck Special Edition patrónupakki M33 × 3,5 | Vetrartilboð
Vetrartilboð – Victory Chuck Special Edition patrónupakki M33 × 3,5
Record Power Victory Chuck Special Edition patrónupakkinn er sérlega fjölhæfur og vel búinn patrónupakki fyrir þá sem vilja takast á við fjölbreytt verkefni í rennismíði.
Viðmiðunarverð er 57.200 kr. Sérstakt vetrartilboðsverð er 39.000 kr. Miðað við viðmiðunarverð sparar þú 18.200 kr.
Pakkinn inniheldur Victory patrónu með M33 × 3,5 gengju, VersaLock hraðskiptikerfi, fjölbreytt úrval kjálkainnskota, planskífuhring, tréskrúfu og nauðsynleg verkfæri.
Vörulýsing
Victory Chuck er vönduð 100 mm fjögurra kjálka rennibekkjapatróna frá Record Power. Hún er hönnuð til að veita örugga festingu, góða nákvæmni og mikinn sveigjanleika við fjölbreytt verkefni.
Patrónan er með M33 × 3,5 beinni gengju og skrúfast því beint á rennibekk með samsvarandi gengju, án sérstaks gengjumillistykkis.
VersaLock hraðskiptikerfið gerir kleift að skipta hratt á milli mismunandi kjálkainnskota. Þannig má laga patrónuna að verkefninu án þess að þurfa að skrúfa hefðbundna kjálka af og á í hvert skipti.
Special Edition-pakkinn inniheldur kjálkainnskot fyrir fjölbreytt verkefni, allt frá skálum og lokkössum til penna og annarra smárra og nákvæmra vinnustykkja.
Helstu eiginleikar
- 100 mm Victory Chuck rennibekkjapatróna
- Fjögurra kjálka tannhjóladrifin uppbygging
- M33 × 3,5 bein gengja
- VersaLock hraðskiptikerfi fyrir kjálkainnskot
- Fjögur mismunandi VersaLock-kjálkainnskot fylgja
- Öruggt og nákvæmt grip um vinnustykkið
- Hentar bæði stærri og smærri verkefnum
- Planskífuhringur og djúp tréskrúfa fylgja
- Lyklar, festibúnaður og örtrefjaklútur fylgja
- Gengjuð veggfesting til að geyma patrónuna fylgir
Pakkinn inniheldur
- Victory Chuck 100 mm patrónu með M33 × 3,5 gengju
- 62690 – VersaLock 50 mm grunnkjálka
- 62696 – VersaLock 35 mm löng kjálkainnskot
- 62697 – VersaLock 28 mm kjálkainnskot
- 62698 – VersaLock Zero Dome-kjálkainnskot
- 62689 – VersaLock pennakjálka
- 62572 – 87 mm planskífuhring
- Djúpa tréskrúfu
- Gengjaða veggfestingu fyrir patrónuna
- T-lykil með kúluenda
- T-lykil fyrir stjörnuskrúfur
- Festibúnað
- 62825 – fjölnota lykil
- Örtrefjaklút
Pakkaupplýsingar
- Stærð pakkningar: 30 × 17 × 11 cm
- Þyngd pakkningar: 5,10 kg
- Vörunúmer: 62067
- Gengja: M33 × 3,5
👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe
Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.
Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta sömu hlutunum fyrir sér: Hvaða stærð þarf ég? Hvaða verkfæri þarf fyrst? Og er flókið að byrja? Við höfum sett saman einfaldan byrjendavegvísi sem útskýrir þetta skref fyrir skref áður en þú velur rennibekk.
👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.