Record Power Victory Chuck Standard patrónupakki M33 × 3,5 | Vetrartilboð
Record Power Victory Chuck Standard patrónupakki M33 × 3,5 | Vetrartilboð
Vetrartilboð – Victory Chuck Standard patrónupakki M33 × 3,5
Record Power Victory Chuck Standard patrónupakkinn er vandaður og fjölhæfur patrónupakki fyrir trésmíði í rennibekk.
Fyrra viðmiðunarverð var 33.100 kr. Sérstakt vetrartilboðsverð er 30.200 kr. Miðað við fyrra viðmiðunarverð sparar þú 2.900 kr.
Pakkinn inniheldur Victory patrónu með M33 × 3,5 gengju, 50 mm kjálkasett, planskífuhring og tréskrúfu.
Vörulýsing
Victory Chuck er öflug rennibekkjapatróna frá Record Power, hönnuð til að veita öruggt grip og góða nákvæmni við fjölbreytt verkefni í rennismíði.
Patrónan er með M33 × 3,5 beinni gengju og skrúfast því beint á rennibekk með samsvarandi gengju, án sérstaks gengjumillistykkis.
Meðfylgjandi 50 mm kjálkasett hentar fyrir fjölbreytt verkefni, meðal annars skálar, vasa og önnur vinnustykki sem þarf að festa tryggilega. Planskífuhringurinn og tréskrúfan gefa fleiri möguleika við upphafsfestingu vinnustykkja.
Hægt er að nota patrónuna með samhæfum kjálkum og aukahlutum frá Record Power.
Helstu eiginleikar
- Victory Chuck rennibekkjapatróna
- M33 × 3,5 bein gengja
- Skrúfast beint á rennibekk með samsvarandi gengju
- 50 mm kjálkasett fylgir
- Öruggt grip um vinnustykkið
- Hentar fyrir fjölbreytt verkefni í rennismíði
- Planskífuhringur og tréskrúfa fylgja
- Samhæf við viðeigandi Record Power kjálka og aukahluti
Pakkinn inniheldur
- Record Power Victory Chuck patrónu
- 50 mm kjálkasett
- Planskífuhring
- Tréskrúfu
Pakkaupplýsingar
- Stærð pakkningar: 30 × 16,5 × 11 cm
- Þyngd pakkningar: 3,66 kg
- Vörunúmer: 62007
- Gengja: M33 × 3,5
👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe
Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.
Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta sömu hlutunum fyrir sér: Hvaða stærð þarf ég? Hvaða verkfæri þarf fyrst? Og er flókið að byrja? Við höfum sett saman einfaldan byrjendavegvísi sem útskýrir þetta skref fyrir skref áður en þú velur rennibekk.
👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.