Record Power PT310/HB – 12 x 8" Afréttari og þykktarhefil með spiralkefli (ein fasa)
Record Power PT310/HB – 12 x 8" Afréttari og þykktarhefil með spiralkefli (ein fasa)
Record Power PT310 – öflugur afréttari og þykktarhefill með hnífa spíralkefli, hjólabúnaði og stafrænum mæli (ein fasa).
PT310-HB sameinar nákvæmni, kraft og einfaldleika í einni vél sem hönnuð er fyrir kröfuharða notendur sem vilja faglega lausn til nákvæmrar vinnslu á timbri.
Í hjarta tækisins er spírallaga hnífakefli með 56 TCT tönnum sem raðað er í fjórum röðum eftir keflinu. Hnífarnir eru kúptir í laginu og skera í skáhorni, sem tryggir einstaklega vandað yfirborð. Þessi aðferð er afar skilvirk, dregur úr aflnotkun og minnkar álag á vélina miðað við hefðbundinn 3-hnífa kefli. Spírallaga fyrirkomulagið bætir einnig loftflæði og tryggir betra útsog frá vélinni með hjálp Camvac sogkerfisins, og minnkar hávaða um allt að 50% miðað við hefðbundnar vélar.
Spírallaga hnífakeflið myndar lítinn, jafn stóran spón sem auðveldar ryk- og spónaútsog og eykur þar með afköst. TCT-hnífarnir endast 10–20 sinnum lengur en hefðbundnir HSS-hnífar, og hver skurðhaus hefur fjórar hliðar. Þegar hnífur slípast, er þeim einfaldlega snúið til að fá ferska egg. Miðað við hefðbundinn 3-hnífa hnífakefli er hnífaskipti og stilling einföld þar sem hver skurðatönn er föst í sínu sæti – engin flókin stilling nausynleg.
Eitt af lykileinkennum PT310-HB er samsíða lyftikerfi borðanna. Skiptingin úr afréttara yfir í þykktarhefil er hröð og einföld – losaðu einfaldlega cam-læsingarnar og lyftu öllu borðinu ásamt aðhaldinu í einni hreyfingu.
Til að tryggja sem sléttast og best yfirborð er útdráttarvalsinn gúmmíhúðaður, sem dregur úr förum í timbrinu við þyktarheflun. PT310-HB er því einfaldur í notkun, öflugur og nákvæmur og skilar faglegri vinnu.
🔹 Bestu kjör með sameiginlegum innflutningi
SG Handverk er umboðsaðili Record Power á Íslandi.
Með því að sameina pantanir tryggjum við lægra verð og öruggan flutning.
Leiðbeinandi verð miðast við áætlaðan flutningskostnað og gengi á þeim tíma er pöntun er staðfest. Smávægilegar verðbreytingar geta orðið vegna gengisbreytinga eða uppfærðs flutningskostnaðar. Endanlegt verð er alltaf staðfest áður en pöntun er samþykkt.
📦 Sjá nánari upplýsingar í fellilista hér fyrir neðan : Pantanir og greiðslufyrirkomulag

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.