Standborvél DP58P - Heavy Duty Pedestal Drill with 50" Column and 5/8" Chuck
Standborvél DP58P - Heavy Duty Pedestal Drill with 50" Column and 5/8" Chuck
DP58P – öflug standborvél til að standa á gólfi með 12 hraðastillingum
Þegar mikilvægt er að bora gat í nákvæmu horni eða stöðva í tiltekinni dýpt er ekkert sem kemur í staðinn fyrir góða standborvél. Með því að stilla vinnustykkið af og festa það á borðið í skrúfstykki hverfur allt ágiskunarstarf – niðurstaðan verður nákvæm, örugg og auðveld endurtekning.
Record Power hefur lengi átt sér orðspor fyrir gæðaborvélar og DP58P heldur þeirri hefð á lofti.
Helstu eiginleikar (til viðbótar minni vélinni)
Traust bygging – úr stáli og steypujárni fyrir styrk og endingu. Stórt, steypt haus tryggir stífleika og dregur úr titringi.
Öflugur mótor – öruggur og endingargóður rafmótor (induction motor).
Stórt, þungt borð – stillanlegt með tannhjólakerfi (rack & pinion) fyrir nákvæma hæðarstillingu.
12 hraðastillingar – hentar fyrir tré og málm. Sérlega gagnlegt þegar bora þarf í lamir, festingar og plötur.
Langtímanotkun – hönnuð til áreiðanlegrar þjónustu í mörg ár, með gæðum sem setja DP58B í sérflokki í þessum verðflokki.
⚠️ Athugið: Skrúfstykki fyrir borvélaborð fylgir ekki með.
🔹 Bestu kjör með sameiginlegum innflutningi
SG Handverk er umboðsaðili Record Power á Íslandi.
Með því að sameina pantanir tryggjum við lægra verð og öruggan flutning.
Leiðbeinandi verð miðast við áætlaðan flutningskostnað og gengi á þeim tíma er pöntun er staðfest. Smávægilegar verðbreytingar geta orðið vegna gengisbreytinga eða uppfærðs flutningskostnaðar. Endanlegt verð er alltaf staðfest áður en pöntun er samþykkt.
📦 Sjá nánari upplýsingar í fellilista hér fyrir neðan : Pantanir og greiðslufyrirkomulag

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.