Hoppa í vörulýsingu
1 af 5

Furu kertastjakar fyrir sprittkerti – sett af 3 | RÓT

Furu kertastjakar fyrir sprittkerti – sett af 3 | RÓT

Verð 8.940 ISK
Verð Útsöluverð 8.940 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Þessir yfirborðs brenndu RÓT kertastjakar eru handsmíðaðir úr endurnýttri furu og hannaðir til að skapa hlýlegt andrúmsloft með einföldum og tímalausum hætti. Þeir njóta sín vel einir og sér en enn betur sem hluti af samræmdri heild RÓT vara, þar sem náttúrulegt útlit, mjúk formgerð og vandaður frágangur lætur viðinn njóta sín.

Hver kertastjaki er einstakur í lit, áferð og viðarmynstri. Smávægileg frávik eru eðlilegur hluti af handverkinu og undirstrika að hér er um raunverulega sérsmíðaða vöru að ræða.

✨ Helstu eiginleikar

  • Handsmíðaðir úr endurnýttri furu - yfirborðsbrenndir
  • Stærð: Hæð 7, 10 og 13 cm – þykkt ca. 8x8 cm
  • Olíu- og vaxbornir með mineralolíu og náttúrulegu bývaxi
  • Traust smíði og stöðugleiki
  • Hentar fyrir hefðbundin te/spritt-ljós
  • Handunnið – hver standur er einstakur 

🕯️ Notkun & stemning

Kertastjakarnir okkar henta jafnt í stofu, borðstofu, eldhús eða á kommóðu og skapa mjúka og hlýja birtu. Þeir eru fallegir stakir en jafnvel enn sterkari í samspili við fleiri RÓT vörur.

Ein RÓT vara er bara byrjun – ekki endapunktur. Saman segja þær sögu heimilisins.

🔧 Sérmerkingar

Hægt er að lasermerkja með nafni, ártali, stuttum texta eða einföldu tákni og gera hann að persónulegri gjöf fyrir sérstök tilefni.

🧼 Umhirða

Þurrkið með rökum klút eftir þörfum og forðist langvarandi bleytu. Gott er að bera RÓT bývax reglulega á til að viðhalda fallegri áferð og vernd.

🤍 Sjálfbærni & kolefnisfótspor

Við hjá SG Handverk vinnum eftir hugmyndafræði RÓT, þar sem endurnýting, ábyrg efnisnýting og vandað handverk eru í forgrunni. Með því að velja RÓT vörur styður þú við sjálfbæra framleiðslu og dregur úr sóun.

👉 Sjá nánar um kolefnisfótspor hér

Magn

Til á lager

Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🌿RÓT Hugsjónin

RÓT byggir á virðingu fyrir efninu og náttúrunni. Við endurnýtum birki og annan við sem annars hefði farið til spillis og gefumhonum nýtt líf í handsmíðuðum vörum með sögu, gæði og sjálfbærni að leiðarljósi.
👉Sjá nánar hér.

🌿Lasermerkingar á RÓT vörur

Gjöf með nafni eða persónulegri kveðju.
Merking fyrir brúðkaup, afmæli eða aðrar hátíðir. Lógó fyrirtækja á viðarvörur fyrir viðskiptavini eða starfsmenn.
👉 Sjá nánar hér.

🌿Birki viðarbretti - eiginleikar og viðhald

Birki skurðar- og ostabretti (charcuterie) – náttúruleg, endingargóð og einstök.
👉Sjá nánar hér

🌿Umhirða & viðhald viðarbretta

Góð umhirða lengir líftíma skurðar- og ostabretta. Þvoðu varlega, þurrkaðu strax og berðu reglulega á með olíu eða vaxi.
👉 Lesa meira um umhirðu

🌿Afhverju evrópskt birki í osta- og skurðarbretti?

Við notum endurnýtt evrópskt birki því það er einn öruggasti viðurinn í matvælatengdar vörur. Auk þess styður birkið við sjálfbæra hringrás og fær nýtt líf í handverki RÓT.
👉 Lesa meira um birkið

🌿Algengarspurningar um viðarbretti (FAQ)

Viltu fræðast meira um skurðar- og ostabretti?
👉Sjá nánar hér

🌿Sjálfbærnig og kolefnisfótspor

RÓT vörurnar eru unnar úr efni sem annars hefði farið til spillis – legðu þitt að mörkum og drögum saman úr sóun og minnkum kolefnisfótspor.
👉 Lesa meira um kolefnisfótsporið okkar

🌿RÓT bývax - næring og vörn

Við mælum með náttúrulega bývaxinu okkar til að vernda viðinn og viðhalda fegurð og
endingu hans. Bývaxið gefur skurðar- og ostabrettunum okkar glansandi útlit og mjúka snertingu, sem gerir það þægilegt í notkun og viðheldur ferskleika þess.
👉 Lesa meira um viðavörnina okkar

🌿Afhverju Titebond III lím?

Við notum eingöngu Titebond III Ultimate Wood Glue í RÓT vörurnar okkar. Þetta lím er FDA samþykkt fyrir matvælanotkun og er, ásamt Titebond II, eina viðarlímið sem uppfyllir þau öryggisskilyrði. Með hæsta vatnsþolsstaðli (ANSI Type I) tryggir það bæði öryggi og endingu í eldhúsnotkun.
👉 Fróðleikur um Titebond lím

♻️ RÓT – vistvænar vörur með rætur í umhverfisábyrgð