Hoppa í vörulýsingu
1 af 4

Langtré skurðarbretti úr evrópsku birki – 30 x 26 cm | RÓT

Langtré skurðarbretti úr evrópsku birki – 30 x 26 cm | RÓT

Verð 17.800 ISK
Verð Útsöluverð 17.800 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

🍽️ Þetta bretti er afar handhægt fyrir smáverk – lítið til meðalstórt langtré skurðarbretti fyrir daglegan undirbúning í eldhúsinu. Þegar það er óþarfi að taka fram stóra brettið (fyrir einn lauk, epli, sítrónu eða smá skurð), þá er þetta bretti fljótlegt, þægilegt og alltaf tilbúið. Fullkomin viðbót með stærri RÓT skurðarbrettum, hvort sem er sem aukabretti við matargerðina eða sérbretti fyrir önnur einföld verk yfir daginn.

✨ Helstu eiginleikar

  • Langhlið yfirborð – unnið úr endurnýttu evrópsku birki
  • Allt efni er sérvalið og gæðaskoðað
  • Stærð: 30× 26 cm
  • Þykkt: ca. 3,0 cm
  • Olíuborið með matvælasamþykktri mineralolíu og náttúrulegu bývaxi
  • Sérstaklega hnífavænt, endingargott og hentugt til daglegrar notkunar
  • Handunnið – smávægileg frávik í málum og áferð geta komið fram

🌿 Samsetning bretta
Við leggjum áherslu á gæði og öryggi í öllum smáatriðum. Nánari upplýsingar um lím og matvælaöryggi má finna í fellilistanum hér að neðan.
👉 Sjá meira í fellilistanum um: Titebond III lím

🌳 Um birkið
Við nýtum evrópskt birki sem annars hefði farið til spillis og gefum því nýtt líf í formi vandaðs handverks. Ljós áferð, náttúrulegir kvistir og lifandi litaskipti gera hvert bretti einstakt.
👉 Sjá meira í fellilistanum um: Af hverju evrópskt birki?

🔧 Sérmerkingar

Hægt er að lasermerkja brettin með nafni, upphafsstöfum, dagsetningu eða einföldu tákni og gera þá að persónulegri gjöf eða hluta af einstakri heild á heimilinu.

💚 Sjálfbært handverk
RÓT vörurnar eru unnar úr endurnýttu hráefni og stuðla að minni sóun og ábyrgri nýtingu efnis.
👉 Sjá nánar í fellilistanum um: Kolefnisfótspor

🧼 Umhirða
Þvoið með volgu vatni og mildri sápu, þurrkið strax og berið reglulega á með matarolíu.
👉 Sjá ítarlegar leiðbeiningar í fellilistanum um: Umhirða & verndun

🔧 Valkostir í innkaupaferlinu
Fræst höldur / Barn door stál höldur, sósurauf, gúmmí fætur eða persónuleg laser áletrun.

Með því að velja vörur úr RÓT vörulínunni styður þú við sjálfbært handverk og dregur úr sóun.

Magn

Til á lager

Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🌿RÓT Hugsjónin

RÓT byggir á virðingu fyrir efninu og náttúrunni. Við endurnýtum birki og annan við sem annars hefði farið til spillis og gefumhonum nýtt líf í handsmíðuðum vörum með sögu, gæði og sjálfbærni að leiðarljósi.
👉Sjá nánar hér.

🌿Lasermerkingar á RÓT vörur

Gjöf með nafni eða persónulegri kveðju.
Merking fyrir brúðkaup, afmæli eða aðrar hátíðir. Lógó fyrirtækja á viðarvörur fyrir viðskiptavini eða starfsmenn.
👉 Sjá nánar hér.

🌿Birki viðarbretti - eiginleikar og viðhald

Birki skurðar- og ostabretti (charcuterie) – náttúruleg, endingargóð og einstök.
👉Sjá nánar hér

🌿Umhirða & viðhald viðarbretta

Góð umhirða lengir líftíma skurðar- og ostabretta. Þvoðu varlega, þurrkaðu strax og berðu reglulega á með olíu eða vaxi.
👉 Lesa meira um umhirðu

🌿Afhverju evrópskt birki í osta- og skurðarbretti?

Við notum endurnýtt evrópskt birki því það er einn öruggasti viðurinn í matvælatengdar vörur. Auk þess styður birkið við sjálfbæra hringrás og fær nýtt líf í handverki RÓT.
👉 Lesa meira um birkið

🌿Algengarspurningar um viðarbretti (FAQ)

Viltu fræðast meira um skurðar- og ostabretti?
👉Sjá nánar hér

🌿Sjálfbærnig og kolefnisfótspor

RÓT vörurnar eru unnar úr efni sem annars hefði farið til spillis – legðu þitt að mörkum og drögum saman úr sóun og minnkum kolefnisfótspor.
👉 Lesa meira um kolefnisfótsporið okkar

🌿RÓT bývax - næring og vörn

Við mælum með náttúrulega bývaxinu okkar til að vernda viðinn og viðhalda fegurð og
endingu hans. Bývaxið gefur skurðar- og ostabrettunum okkar glansandi útlit og mjúka snertingu, sem gerir það þægilegt í notkun og viðheldur ferskleika þess.
👉 Lesa meira um viðavörnina okkar

🌿Afhverju Titebond III lím?

Við notum eingöngu Titebond III Ultimate Wood Glue í RÓT vörurnar okkar. Þetta lím er FDA samþykkt fyrir matvælanotkun og er, ásamt Titebond II, eina viðarlímið sem uppfyllir þau öryggisskilyrði. Með hæsta vatnsþolsstaðli (ANSI Type I) tryggir það bæði öryggi og endingu í eldhúsnotkun.
👉 Fróðleikur um Titebond lím

♻️ RÓT – vistvænar vörur með rætur í umhverfisábyrgð