Hoppa í vörulýsingu
1 af 3

Viðarvax fyrir skurðarbretti – næring og vörn | RÓT

Viðarvax fyrir skurðarbretti – næring og vörn | RÓT

Verð 2.790 ISK
Verð Útsöluverð 2.790 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

🪵 Viðarvax – næring og vörn (110 g)

Viðarvaxið nærir viðinn, dregur úr hættu á sprungum og veitir aukna vörn gegn raka og matarleifum. Regluleg notkun hjálpar til við að viðhalda áferð, lit og endingu skurðarbrettisins.

Vaxið er auðvelt í notkun og hentar vel til viðhalds á bæði nýjum og eldri brettum. Það dregst vel inn í viðinn og skilur eftir sig náttúrulega, mjúka áferð án þess að vera klístrað.

✅ Kostir:

  • Nærir viðinn og hjálpar til við að koma í veg fyrir sprungur
  • Verndar gegn raka og daglegu sliti
  • Eykur endingu og viðheldur útliti brettisins

Viðhald með olíu eða vaxi er áfram hluti af reglulegri umhirðu skurðarbretta.

Innihald: Matarhæf mineralolía, náttúrulegt beeswax og carnaubavax, með léttum sítruskeim.
Efni: Allt innihald er matvælasamþykkt.

👉 Sjá nánar um RÓT viðarvaxið

Aukahlutir RÓT eru hugsaðir sem viðbót við notkun brettisins, án þess að breyta eðli þess.

Magn

Til á lager

Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🌿RÓT Hugsjónin

RÓT byggir á virðingu fyrir efninu og náttúrunni. Við endurnýtum birki og annan við sem annars hefði farið til spillis og gefumhonum nýtt líf í handsmíðuðum vörum með sögu, gæði og sjálfbærni að leiðarljósi.
👉Sjá nánar hér.

🌿Lasermerkingar á RÓT vörur

Gjöf með nafni eða persónulegri kveðju.
Merking fyrir brúðkaup, afmæli eða aðrar hátíðir. Lógó fyrirtækja á viðarvörur fyrir viðskiptavini eða starfsmenn.
👉 Sjá nánar hér.

🌿Birki viðarbretti - eiginleikar og viðhald

Birki skurðar- og ostabretti (charcuterie) – náttúruleg, endingargóð og einstök.
👉Sjá nánar hér

🌿Umhirða & viðhald viðarbretta

Góð umhirða lengir líftíma skurðar- og ostabretta. Þvoðu varlega, þurrkaðu strax og berðu reglulega á með olíu eða vaxi.
👉 Lesa meira um umhirðu

🌿Afhverju evrópskt birki í osta- og skurðarbretti?

Við notum endurnýtt evrópskt birki því það er einn öruggasti viðurinn í matvælatengdar vörur. Auk þess styður birkið við sjálfbæra hringrás og fær nýtt líf í handverki RÓT.
👉 Lesa meira um birkið

🌿Algengarspurningar um viðarbretti (FAQ)

Viltu fræðast meira um skurðar- og ostabretti?
👉Sjá nánar hér

🌿Sjálfbærnig og kolefnisfótspor

RÓT vörurnar eru unnar úr efni sem annars hefði farið til spillis – legðu þitt að mörkum og drögum saman úr sóun og minnkum kolefnisfótspor.
👉 Lesa meira um kolefnisfótsporið okkar

🌿RÓT bývax - næring og vörn

Við mælum með náttúrulega bývaxinu okkar til að vernda viðinn og viðhalda fegurð og
endingu hans. Bývaxið gefur skurðar- og ostabrettunum okkar glansandi útlit og mjúka snertingu, sem gerir það þægilegt í notkun og viðheldur ferskleika þess.
👉 Lesa meira um viðavörnina okkar

🌿Afhverju Titebond III lím?

Við notum eingöngu Titebond III Ultimate Wood Glue í RÓT vörurnar okkar. Þetta lím er FDA samþykkt fyrir matvælanotkun og er, ásamt Titebond II, eina viðarlímið sem uppfyllir þau öryggisskilyrði. Með hæsta vatnsþolsstaðli (ANSI Type I) tryggir það bæði öryggi og endingu í eldhúsnotkun.
👉 Fróðleikur um Titebond lím

♻️ RÓT – vistvænar vörur með rætur í umhverfisábyrgð